Íslensk vinnustaðalausn hönnuð af Tactica til að einfalda daglegan rekstur, tímaskráningu og mannauðsmál á íslenskum vinnumarkaði.
Hulda varð til vegna þess að íslensk fyrirtæki voru að nota kerfi sem voru ekki hönnuð fyrir íslenskan vinnumarkað. Flest fyrirtæki þurftu að styðjast við erlend kerfi sem skildu hvorki íslenska kjarasamninga né stéttarfélög, og héldu utan um afganginn í töflureiknum og tölvupósti.
Sérfræðingar Tactica ákváðu að smíða kerfi sem leysir þetta frá grunni. Hulda tengir saman alla þætti starfsferilsins — ráðningar, tímaskráningu, vaktir, leyfi, veikindi og samninga — í eina samfellda keðju þar sem gögn eru skráð einu sinni og nýtast alls staðar.
Við trúum því að tækni eigi að vera einföld og að þú þurfir enga flókna handbók til að ná árangri í mannauðsstjórnun.

Kjarasamningar, stéttarfélög og íslenskar reglur eru innbyggð í kerfið frá fyrsta degi.
Ekkert er skráð tvisvar. Tímaskráning, leyfi og samningar flæða sjálfkrafa yfir í tímaseðilinn.
Skýrt viðmót í síma og tölvu sem auðveldar samstarf starfsfólks, stjórnenda og mannauðsstjóra.