Kjarasamningurinn er ekki aukaatriði sem þarf að setja upp. Hann er innbyggður hluti af kerfinu, hannaður frá grunni fyrir íslenskan vinnumarkað.
Kerfið flokkar unnar stundir sjálfvirkt í rétta álagsflokka samkvæmt gildandi kjarasamningum (kvöld, nætur, helgar og yfirvinna).
Áunninn veikinda- og orlofsréttur er reiknaður samkvæmt starfsaldri og gildandi kjarasamningi starfsmannsins.
Íslenskir lífeyrissjóðir og stéttarfélög eru hluti af kerfinu og það vinnur með kennitölur frá grunni.
Starfsmannahandbók og samningasniðmát á íslensku tilbúin til notkunar fyrir ráðningar og starfsfólk.
Hulda styður við gerð jafnlaunaskýrslu til Jafnréttisstofu á þriggja ára fresti fyrir fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri, með sjálfvirkri áminningu um frestinn.