Tímaskráning, fjarvistir, samningar og viðverustýring á einum stað. Kerfi sem léttir undir í daglegum rekstri.
Með Huldu eru öll gögn skráð einu sinni og nýtast alls staðar. Þegar starfsmaður sækir um leyfi í símanum og stjórnandi samþykkir, uppfærist staðan, dagatalið og vaktaplanið sjálfkrafa.
Starfsmaður skráir vinnutíma eða leyfi
Yfirmaður samþykkir með einum smelli
Mannauður fer yfir frávik og mánaðarlok
Tilbúinn tímaseðill í launavinnslu
Stimplun í síma og vafra með sjálfvirkri flokkun á kvöld-, nætur-, helgar- og yfirvinnu.
Skýrt yfirlit yfir áunna orlofsdaga, veikindatilkynningar og ábendingar ef leyfi skarast.
Ráðningarsamningar úr íslenskum sniðmátum og öll breytingasaga starfsmannsins rekjanleg.