
Einfaldaðu utanumhald kjarasamninga, veikindaréttinda og orlofsréttar með íslensku viðmóti og íslenskum stuðningi.
Ólíkt erlendum kerfum sem skilja ekki íslenskan vinnumarkað eru kjarasamningar, stéttarfélög og lífeyrissjóðir innbyggður hluti af Huldu. Kerfið flokkar sjálfkrafa stundir í álagsflokka og heldur utan um réttindi samkvæmt gildandi samningum.
Kerfið vinnur með kennitölur og íslensk gögn frá grunni, hannað fyrir íslenska innviði og stjórnsýslu. Upplýsingar verða sóttar úr Þjóðskrá út frá kennitölu (væntanlegt).
Sniðmát og handbækur á íslensku fyrir greiða innleiðingu á vinnustaðnum.
Við tengjumst launakerfinu þínu og smíðum tengingar þar sem hægt er. Tímaseðillinn fer beint í launavinnsluna.